CrossFit Leikar
Umsjón móts: Þrekmótaröðin
Uppbygging keppninnar er lauslega byggð á hugmyndafræði CrossFit hvað varðar æfingar og hugtök. Keppnin er breytileg milli ára en keppnissvæðið hefur í tveimur tilfellum verið við skíðabrekkuna í Elliðaárdal, eitt skipti í aðstöðu CrossFit Sport í Sporthúsinu (vegna öskumengunar). Uppbygging móts, stigagjöf og æfingar eru breytilegar milli ára.
5x5 Áskorunin
Umsjón móts: Stjórn Þrekmótaraðarinnar. www.threkmot.is
Mótið er byggt upp á annan máta en önnur mót ársins. Það byggist á 5 hólfum með 2-3 æfingum sem skal framkvæma eins oft og hægt er á 4 mínútum. 5x5 Áskorunin var fyrst haldin 2010 og er áætlað að keppnisgreinarnar haldist óbreyttar milli ára.
Boot cAmp Keppnin
Æfingakerfi Bootcamp er að miklu leiti byggt upp á æfingum með eigin líkamsþyngd, en þó eru sandpokar, þyngingarvesti, ketilbjöllur, lóð og tæki notuð samhliða.
Lífsstíls Meistarinn
Umsjón móts: Lífsstíll - líkamsrækt, Reykjanesbæ. www.lifsstill.net
Keppnin er með sama sniði á hverju ári og byggist á 10 greinum sem keyrt er í gegnum á sem skemmstum tíma. Hugmyndin að keppnisforminu byggist á æfingum sem hægt er að gera í öllum almennum líkamsræktarstöðvum með tækjasal. Æfingarnar tíu eru; þrekhjól, niðurtog, róður, froskahopp, kassauppstig með þyngd, bekkjarhopp, uppsetur, axlapressur, hlaup á bretti og bekkpressa.









