Tilkynningar

 

EAS Þrekmótaröðin er í samstarfi við Lyfjaeftirlit ÍSÍ

Aðildarstöðvar:

 

Styrktaraðilar:

Samstarfsaðilar:

This form does not yet contain any fields.

    Entries in rástímar (4)

    miðvikudagur
    okt.172012

    Lífsstíls Meistarinn - Rásröð (drög)

    Hér eru drög að rásröð og dagskrá fyrir keppnina á laugardaginn.

    ATH. Það er á ábyrgð keppenda að fara vel yfir sína skráningu og tilkynna strax ef einhverju þarf að breyta.

    LOKAHÓFIÐ
    Þeir sem ætla á lokahófið skulu melda sig inn á það með því að smella á borðann hér að neðan.
    Hlaðborð af dýrindis kjúkling, salati, kartöflum og gotteríi verður á boðstólnum í magni sem ætti að metta alla og vel það, sem verður svo toppað með gómsætum eftirrétt.
    Ódýrir drykkir verða til sölu á staðnum en öllum verður einnig frjálst að mæta með eigin drykkjarföng. 
    Á lokahófinu verður Björn Bragi veislustjóri, Kiddi Bigfoot sér um tónlistina og viðstaddir fá að sjá brot úr fyrsta sjónvarpsþættinum um EAS Þrekmótaröðina, verðlaunaafhendingu fyrir Hraustustu Íslendingana 2012 og stutta kynningu á endurbættri Þrekmótaröð 2013. Allt þetta og far í bæinn að skemmtun lokinni á litlar 5.000 krónur sem er gjöf en ekki gjald. Mjög takmarkaður fjöldi miða í boði, aðeins 250, fyrstir skrá - fyrstir fá! Ekki hika. Greiðsla staðfestir skráningu.


    Greiðsla fyrir Lokahófið greiðist til:
    Þrekmótaröðin, kennitala. 450210-2770, reikningsnúmer. 115-05-060705  Skýring: Lokahóf. Kvittun sendist til threkmot@threkmot.is

    fimmtudagur
    maí312012

    5x5 Áskorunin 2012 - rásröð

    Rásröð keppenda í 5x5 Áskoruninni.

    Keppendur þurfa að yfirfara skráningu sína eða síns liðs og senda okkur strax póst ef upplýsingar eru ekki réttar á threkmot@threkmot.is. Leiðréttingar sem verða gerðar koma ekki fram á þessu skjali en verða á útprentuðum blöðum á keppnisstað. 

    SMELLIÐ Á MYNDINA HÉR AÐ NEÐAN TIL AÐ OPNA SKJALIÐ MEÐ RÁSRÖÐINNI:

     

    Minnum aftur á að greiðsla staðfestir skráningu í keppnina.

    ATH. Okkur vantar enn dómara á laugardaginn. Þeir sem keppa mega líka dæma svo lengi sem það er ekki í sama flokk og þeir keppa í. Þessvegna biðjum við keppendur sem keppa bara í einum keppnisflokki að hjálpa okkur í dómgæslunni og láta okkur þá vita við skráningu á laugardaginn.

    þriðjudagur
    feb.142012

    CrossFit Leikar 2012 - Rásröð og keppendalisti

    Skráningu lauk núna á sunnudaginn og það er orðið ljóst að um stærsta mótið til þessa er að renna upp. Mótið fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði og kostar ekkert fyrir áhorfendur að fjölmenna. Auk þess verða samstarsaðilar EAS Þrekmótaraðarinnar á svæðinu með alls kyns varning fyrir mótsgesti. XFit mun meðal annars standa fyrir skemmtilegri áhorfendaáskorun.

    Dagskrá móts, laugardaginn 18.feb 2012:
    08:00 Keppendafundur
    09:00 Einstaklingskeppni
    12:30 Parakeppni
    13:30 Liðakeppni
    16:00 Verðlaunaafhending

    TILKYNNING VARÐANDI LIÐAKEPPNINA
    Til þess að fyrirbyggja misskilning varðandi liðakeppnina skal tekið fram að liðsmaður má ekki fara úr sinni æfingu í næstu fyrr en liðsmaðurinn á undan hefur lokið sinni æfingu. Þannig telst hver æfing vera eitt hólf, liðsmaður má ekki yfirgefa hólfið sitt fyrr en hólfið fyrir framan hann er laust. Þannig geta liðsmenn ekki safnast upp í bið í einu hólfi.

    DÓMARAR ÓSKAST
    Vegna metskráningar vantar okkur góða einstaklinga í dómarastöður. Þetta er bæði krefjandi og skemmtilegt og við hvetjum alla áhugasama um að skrá sig og vera með. Dómaranámskeið munu fara fram í CrossFit Reykjavík á miðvikudag og fimmtudag kl.20:00. Nóg er að mæta á svæðið annan hvorn daginn án sérstakrar skráningar.

    Nánari dagskrá og rásröð má finna hér (smellið á myndina): 

    fimmtudagur
    mar.102011

    Keppendalisti og rástímar, Lífsstíls Meistarinn 2011

    uppfært fös 11.mars kl.14:55