Lífsstíls Meistarinn - Rásröð (drög)
miðvikudagur, október 17, 2012 at 8:36PM Hér eru drög að rásröð og dagskrá fyrir keppnina á laugardaginn.
ATH. Það er á ábyrgð keppenda að fara vel yfir sína skráningu og tilkynna strax ef einhverju þarf að breyta.
LOKAHÓFIÐ
Þeir sem ætla á lokahófið skulu melda sig inn á það með því að smella á borðann hér að neðan.
Hlaðborð af dýrindis kjúkling, salati, kartöflum og gotteríi verður á boðstólnum í magni sem ætti að metta alla og vel það, sem verður svo toppað með gómsætum eftirrétt.
Ódýrir drykkir verða til sölu á staðnum en öllum verður einnig frjálst að mæta með eigin drykkjarföng.
Á lokahófinu verður Björn Bragi veislustjóri, Kiddi Bigfoot sér um tónlistina og viðstaddir fá að sjá brot úr fyrsta sjónvarpsþættinum um EAS Þrekmótaröðina, verðlaunaafhendingu fyrir Hraustustu Íslendingana 2012 og stutta kynningu á endurbættri Þrekmótaröð 2013. Allt þetta og far í bæinn að skemmtun lokinni á litlar 5.000 krónur sem er gjöf en ekki gjald. Mjög takmarkaður fjöldi miða í boði, aðeins 250, fyrstir skrá - fyrstir fá! Ekki hika. Greiðsla staðfestir skráningu.
Greiðsla fyrir Lokahófið greiðist til:
Þrekmótaröðin, kennitala. 450210-2770, reikningsnúmer. 115-05-060705 Skýring: Lokahóf. Kvittun sendist til threkmot@threkmot.is
Threkmotarodin | Comments Off |
Lokahóf,
Lífsstíls Meistarinn,
rásröð,
rástímar in
Tilkynningar 














