CrossFit Leikarnir fóru fram utandyra undir heiðskýrum himni og kjöraðstæðum. Þrautirnar fóru fram á bílastæðaplani, á túninu og í brekkunni sjálfri, en meðal annars fólu keppnisgreinar í sér brekkuspretti, ýtingar á þyngdum sleða (prowler), ketilbjölluæfingar og ýmsar lyftur með hlaðinni lyftingastöng. Rúmlega 40 karlar og konur kepptu í einstaklingsflokkum, 30 lið og 17 pör. Keppnin var gríðarlega hörð og var mjög mjótt á munum efstu sæta í nokkrum flokkum.
Helstu úrslit eru:
Einstaklingsflokkur karla - opinn flokkur:
1. Elvar Þór Karlsson
2. Vikar Sigurjónsson
3. Evert Víglundsson
Einstaklingsflokkur kvenna - opinn flokkur:
1. Annie Mist Þórisdóttir
2. Hjördís Ósk Óskarsdóttir
3. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir
Liðakeppni karla - opinn flokkur:
1. BC Drumbar
2. 5 Tindar
3. CFR Elite
Liðakeppni kvenna - opinn flokkur:
1. Bootcamp Wonder
2. RX
3. BC Súper
Hægt er að sjá öll nánari úrslit, millitíma og fjölda endurtekninga [ HÉR ]
Við viljum endilega leyfa minningunni af mótinu lifa sem lengst og því biðjum við alla sem tóku góðar myndir á keppninni að hafa samband við okkur (hér til hægri á síðunni) ef þið viljið leyfa okkur að deila þeim :)