Íslandsmótið í róðri
föstudagur, apríl 5, 2013 at 8:18AM
Íslandsmótið í róðri fer fram 4. maí næstkomandi. Keppnin verður haldin á vegum Þrekmótaraðarinnar í boði Rekkjunnar, Now og Under armour.
Keppt verður í þremur flokkum eins og í öðrum mótum Þrekmótaraðarinnar þ.e.a.s. einstaklings-, para-, og liðakeppni þar sem eru 5 í liði. Íslandsmótið í róðri telur ekki til stiga í Þrekmótaröðinni.
Flokkarnir og vegalengdir verða skiptir upp eins og hér segir:
- Einstaklings 500m
- Einstaklings 2000m
- Para 1500m (frjálsar skiptingar)
- Liða 3500m (frjálsar skiptingar)
Ath. pása verður á milli keppnisflokka til að jafna sig.
Ath. liðsfélagar og pör mega aðstoða við skiptingar
Hægt verður að fylgjast með framgangi hvers og eins ræðara þar sem allar róðravélar verða samtengdar varpað upp á vegg með skjávarpa. Þar mun sjást hvar hver og einn er staddur á rauntíma.
Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum flokki
Skráning verður inn á www.threkmot.is og verður frá 14. – 22. apríl.
Verð: Einstaklingskeppni 2000 kr, parakeppni 3000 kr, liðakeppni 6000 kr.
Íslansmótið í róðri,
Þrekmótaröðin 2013 in
Fréttir 












