Tilkynningar

 

EAS Þrekmótaröðin er í samstarfi við Lyfjaeftirlit ÍSÍ

Aðildarstöðvar:

 

Styrktaraðilar:

Samstarfsaðilar:

This form does not yet contain any fields.

    föstudagur
    feb.172012

    CrossFit Leikarnir - nánari upplýsingar

    Nú er allt að smella fyrir stærstu keppni af þessu tagi sem farið hefur fram á Íslandi!! ..hvorki meira né minna.

    Búið er að taka saman athugasemdir frá keppendum, laga rásraðir og númeraraða keppendum.

    Það verður HÖRKU stemmning í Kaplakrikanum á morgun og umgjörðin öll hinn glæsilegasta.

    Kíkið á skjalið ef þið eruð keppendur og yfirfarið hvort ekki sé allt rétt (smellið á myndina)

    þriðjudagur
    feb.142012

    CrossFit Leikar 2012 - Rásröð og keppendalisti

    Skráningu lauk núna á sunnudaginn og það er orðið ljóst að um stærsta mótið til þessa er að renna upp. Mótið fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði og kostar ekkert fyrir áhorfendur að fjölmenna. Auk þess verða samstarsaðilar EAS Þrekmótaraðarinnar á svæðinu með alls kyns varning fyrir mótsgesti. XFit mun meðal annars standa fyrir skemmtilegri áhorfendaáskorun.

    Dagskrá móts, laugardaginn 18.feb 2012:
    08:00 Keppendafundur
    09:00 Einstaklingskeppni
    12:30 Parakeppni
    13:30 Liðakeppni
    16:00 Verðlaunaafhending

    TILKYNNING VARÐANDI LIÐAKEPPNINA
    Til þess að fyrirbyggja misskilning varðandi liðakeppnina skal tekið fram að liðsmaður má ekki fara úr sinni æfingu í næstu fyrr en liðsmaðurinn á undan hefur lokið sinni æfingu. Þannig telst hver æfing vera eitt hólf, liðsmaður má ekki yfirgefa hólfið sitt fyrr en hólfið fyrir framan hann er laust. Þannig geta liðsmenn ekki safnast upp í bið í einu hólfi.

    DÓMARAR ÓSKAST
    Vegna metskráningar vantar okkur góða einstaklinga í dómarastöður. Þetta er bæði krefjandi og skemmtilegt og við hvetjum alla áhugasama um að skrá sig og vera með. Dómaranámskeið munu fara fram í CrossFit Reykjavík á miðvikudag og fimmtudag kl.20:00. Nóg er að mæta á svæðið annan hvorn daginn án sérstakrar skráningar.

    Nánari dagskrá og rásröð má finna hér (smellið á myndina): 

    föstudagur
    feb.102012

    Áríðandi tilkynning

    Ákveðið hefur verið að breyta þyngdum í liðakeppni kvenna í æfingunni "Ground 2 Overhead" úr 30 kílóum í 25 kíló.

    Munið að skráningu lýkur næsta sunnudagskvöld kl.23:59.

    Okkur vantar enn dómara. Þeir sem eru áhugasemir mega senda okkur póst á threkmot@threkmot.is eða hafa samband við Evert í CrossFit Reykjavík. Námskeið fyrir dómara verða haldin á miðvikudag og fimmtudag.

    Stjórn EAS Þrekmótaraðarinnar

    sunnudagur
    jan.292012

    CrossFit Leikar 2012 - SKRÁNING

    Nú hefur skráning verið opnuð fyrir CrossFit Leikana sem munu fara fram í Kaplakrika laugardaginn 18.febrúar.

    Mótið verður allt hið glæsilegasta og mótið skemmtilega sett upp fyrir keppendur og áhorfendur. Við hvetjum alla keppendur til að skrá sig á öll mót ársins og spara sér þar með 25% af keppnisgjöldum ársins.

    Til enn frekari hvatningar þá munu allir keppendur sem taka þátt á öllum mótum ársins lenda í potti sem dregið verður úr í lok ársins. Sigurvegarinn þar hlýtur að verðlaunum glæsilega lyftingastöng ásamt lóðum frá XFit.is

    fimmtudagur
    jan.262012

    CrossFit Leikar 2012 - myndbönd

    Myndbönd hafa nú verið gerð til að útskýra framkvæmd æfinganna sem verða í keppninni. Við hvetjum keppendur til að kynna sér vel þessi myndbönd svo hægt sé að forðast vafamál á keppnisdegi.

    Skráning hefst núna á sunnudaginn, 29.janúar, hér á threkmot.is

    EAS Þrekmótaröðin á Youtube (öll myndbönd)

    Einstaklingskeppni:
    WOD1
    WOD2
    WOD3

    Parakeppni:
    WOD1
    WOD2 

    Liðakeppni:
    WOD

    Ef þið eruð í vandræðum að skilja heitin á æfingum er ágætis hugtakalykill HÉR

    Page 1 ... 8 9 10 11 12 ... 18 Next 5 Entries »