5x5 Áskorunin - Akranes, 2.júní
föstudagur, mars 9, 2012 at 10:09AM
Þá fer að líða á næsta móti EAS Þrekmótaraðarinnar 2012, en það verður 5x5 Áskorunin. Undanfarin tvö ár hefur mótið farið fram í Vestmannaeyjum og verið síðasta mót ársins. Nú verður hinsvegar mótið haldið á Akranesi og sem annað mót ársins.
Mótið fer fram í Íþróttahúsi Skagamanna og verður allt hið glæsilegasta. Nóg verður um afþreyingu fyrir áhorfendur utan mótsins og verður m.a. áhorfendaáskorun og ýmsar kynningar í gangi. Búast má við gríðarlega skemmtilegu og spennandi móti.
Á síðastliðnum 5x5 mótum hefur verið búningakeppni en þetta árið verður hún á LífsstílsMeistaranum, eða um það leiti sem Hrekkjavakan er.
Fyrirkomulag keppninnar er það sama og fyrri ár og keppnisgreinarnar þær sömu. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um mótið HÉR
Skráning hefst sunnudaginn 6.maí og lýkur 6 dögum fyrir mótið, sunnudaginn 27.maí kl.23:59.
Threkmotarodin | Comments Off |
5x5 Áskorunin,
Akranes in
Tilkynningar 








