CrossFit Leikar 2012 - Rásröð og keppendalisti
þriðjudagur, febrúar 14, 2012 at 11:54PM Skráningu lauk núna á sunnudaginn og það er orðið ljóst að um stærsta mótið til þessa er að renna upp. Mótið fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði og kostar ekkert fyrir áhorfendur að fjölmenna. Auk þess verða samstarsaðilar EAS Þrekmótaraðarinnar á svæðinu með alls kyns varning fyrir mótsgesti. XFit mun meðal annars standa fyrir skemmtilegri áhorfendaáskorun.
Dagskrá móts, laugardaginn 18.feb 2012:
08:00 Keppendafundur
09:00 Einstaklingskeppni
12:30 Parakeppni
13:30 Liðakeppni
16:00 Verðlaunaafhending
TILKYNNING VARÐANDI LIÐAKEPPNINA
Til þess að fyrirbyggja misskilning varðandi liðakeppnina skal tekið fram að liðsmaður má ekki fara úr sinni æfingu í næstu fyrr en liðsmaðurinn á undan hefur lokið sinni æfingu. Þannig telst hver æfing vera eitt hólf, liðsmaður má ekki yfirgefa hólfið sitt fyrr en hólfið fyrir framan hann er laust. Þannig geta liðsmenn ekki safnast upp í bið í einu hólfi.
DÓMARAR ÓSKAST
Vegna metskráningar vantar okkur góða einstaklinga í dómarastöður. Þetta er bæði krefjandi og skemmtilegt og við hvetjum alla áhugasama um að skrá sig og vera með. Dómaranámskeið munu fara fram í CrossFit Reykjavík á miðvikudag og fimmtudag kl.20:00. Nóg er að mæta á svæðið annan hvorn daginn án sérstakrar skráningar.
Nánari dagskrá og rásröð má finna hér (smellið á myndina):
Threkmotarodin | Comments Off |
crossfit leikar,
rásröð,
rástímar in
Tilkynningar 










Reader Comments (1)
Á eftir að uppfæra upplýsingar um hvaða lið eru í opnum flokki og hver í 39+?