EAS verður bakhjarl Þrekmótaraðarinnar 2011
fimmtudagur, júlí 17, 2008 at 8:37PM Nú er þriðja ár Þrekmótaraðarinnar gengið í garð og stemmningin aldrei meiri. Reynslan hefur nýst skipuleggjendum vel síðustu tvö ár sem hefur skilað sér í sífellt betur skipulögðum mótum, nú síðast 5x5 Áskoruninni í Vestmannaeyjum, þar sem allar fjórar aðildarstöðvarnar auk Kettlebells Iceland tóku höndum saman og settu upp alveg nýja keppni sem klárlega verður endurtekin í ár.
Eins og undanfarin ár mun Þrekmótaröðin samanstanda af fjórum keppnum yfir árið, Lífsstíls Meistaranum, CrossFit Leikunum, Boot Camp Keppninni og 5x5 Áskoruninni. Nú hefur staðallinn verið hækkaður og verða keppnir þessa árs enn glæsilegari. Lykillinn að betri mótum hefur verið góð samvinna milli aðildarstöðva og keppenda auk þess sem hreinskilin endurgjöf frá keppendum, dómurum og áhorfendum hefur haft mikið að segja.
Bakhjarl okkar og helsti samstarfsaðili að Þrekmótaröðinni í ár er EAS á Íslandi og mun mótaröðin heita EAS Þrekmótaröðin 2011. Aðrir helstu samstarfsaðilar okkar í ár eru ---------, ---------- og ----------.
Við hvetjum ÞIG að skrá þig strax í fyrsta mótið, Lífsstíls Meistarann, sem fer fram 12.mars í Íþróttahúsinu í Keflavík. Líkt og í öðrum mótum er keppt í einstaklingskeppni og liðakeppni beggja kynja og í tveimur aldursflokkum. Þetta ár mun parakeppnin einnig telja til stiga í mótaröðinni. Skoðaðu nýju heimasíðuna okkar, flettu gegnum eldri úrslit, lestu nýju stigagjöfina og reglurnar og láttu sjá þig á nýjustu og skemmtilegustu keppnismótaröð landsins.










Reader Comments (1)
---------, ---------- og ----------.
Hangman? Er R einhverstaðar þarna?